Leita í verlun

Baðsalt Lofnarblóm

Dásamlegur ilmur lofnarblóms (lavender Sólheima gefur róandi yl, djúpa slökun og losar um streitu og kvíða. Vegna þess hve djúpt lofnarblómið nær inn í líkamsvitundina er gjarnan sagt að það losi okkur undan ótta og skerpi sjötta skilningarvitið.

Jurtabaðsölt Sólheima eru úr náttúrulegum steinefnum, handtíndum jurtum úr blóma – og jurtagarði Sólheima og lífrænt vottuðum ilmkjarnaolíum. Þau innihalda öll Epsom salt sem mýkir húðina um leið og það skolar burtu uppsöfnuðum eiturefnum. Epsom salt er magnesíum súlfat sem frásogast vel inn í líkamann og því bæði gott fyrir líkama og huga. Einnig geyma baðsöltin sjávarsalt sem er sótthreinsandi og steinefnaríkt og matarsóda sem er hreinsandi og eyðir slæmri líkamslykt

Notið um það bil 45gr. ( 3 msk.) í baðvatnið. Notist ekki á meðgöngu. Geymið á þurrum stað frá sólarljósi. Ilmurinn gæti dofnað með tímanum en krafturinn síður. Allar húðsnyrtivörur Sólheima eru án parabena og allra kemískra lyktar – og lytarefna.