Leita í verlun

Baðsalt Piparmynta & Blóðberg

Jurtabaðsalt sem framkallar fríkandi fegurð!
Þekkt er að piparmynta örvar blóðrásina og vekur öll skilningarvit. Þetta jurtabaðsalt hentar því sérlega vel þeim sem þurfa að hreinsa öndunarveginn vegna sýkinga. Annað sem ýtir undir öfluga virkni þessarra blöndu eru birki sem mýkir og er vekjadeyfandi, blóðberg sem sótthreinsar og haugarfi sem kælir og mýkir. Piparmyntu jurtabaðsaltið er litað með lífrænt vottaðri graskersolíu.

Jurtabaðsölt Sólheima eru úr náttúrulegum steinefnum, handtíndum jurtum úr blóma – og jurtagarði Sólheima og lífrænt vottuðum ilmkjarnaolíum. Þau innihalda öll Epsom salt sem mýkir húðina um leið og það skolar burtu uppsöfnuðum eiturefnum. Epsom salt er magnesíum súlfat sem frásogast vel inn í líkamann og því bæði gott fyrir líkama og huga. Einnig geyma baðsöltin sjávarsalt sem er sótthreinsandi og steinefnaríkt og matarsóda sem er hreinsandi og eyðir slæmri líkamslykt

Notið um það bil 45gr. ( 3 msk.) í baðvatnið. Notist ekki á meðgöngu. Geymið á þurrum stað frá sólarljósi. Ilmurinn gæti dofnað með tímanum en krafturinn síður. Allar húðsnyrtivörur Sólheima eru án parabena og allra kemískra lyktar – og lytarefna.