Jólarjúpa Sólheima 2026
🎄 Ný jólahefð fæðist á Sólheimum – Jólarjúpa Sólheima 2026
Í ár kynnir Listasmiðja Sólheima nýja og einstaka hefð: tölusetta jólaútgáfu af hinni ástsælu Sólheimarjúpu.
Jólarjúpan fyrir árið 2026 er höfundarverk listamannsins Kristjáns Atla Sævarssonar, unnið undir handleiðslu Egils Valdimarssonar fagstjóra leirgerðar Sólheima. Kristján Atli sem oft er kallaður doppumeistari Sólheima hefur um árabil skapað hina vinsælu Doppu rjúpu í leirgerð Sólheima sem notið hefur mikillar vinsældar.